Datatech

Hjálp

Svör við því sem fólk spyr oftast um Skýjadrif.

Algengar spurningar

Fyrstu skrefin

Gögnin sem Datatech bjargaði

Þegar Datatech hefur bjargað gögnunum setjum við þau í Skýjadrif og sendum þér tölvupóst með hlekk. Hlekkurinn gildir í 30 daga. Fáirðu fleiri en einn póst virkar aðeins hlekkurinn í þeim nýjasta.

  1. Opnaðu hlekkinn í póstinum.
  2. Sé símanúmerið þitt skráð hjá okkur smellirðu á Senda kóða og slærð inn kóðann sem berst með SMS.
  3. Veldu lykilorð sem er minnst 12 stafir og samþykktu skilmálana.
  4. Settu upp tveggja þátta auðkenningu og geymdu varakóðana vel.

Gögnin eru í möppu sem heitir „Endurheimt gögn“ og svo málsnúmerið. Hún er efst í möppuskipaninni.

Starfsfólk Datatech sem setti gögnin inn missir aðganginn um leið og þú samþykkir boðið.

Prufutíminn hefst daginn sem við sendum þér póstinn. Viðskiptavinir í gagnabjörgun fá líka 20% afslátt fyrstu 12 mánuðina eftir að áskrift hefst. Lestu meira um prufuna.

Viltu hafa öll gögnin á eigin tölvu eða diski? Svona sækirðu þau.

Boð frá öðrum

Eigandi eða stjórnandi reiknings getur boðið þér inn á hann. Boðið berst í tölvupósti, eða þú færð hlekkinn sendan á annan hátt. Hann gildir í 7 daga.

  1. Opnaðu hlekkinn.
  2. Veldu lykilorð sem er minnst 12 stafir og samþykktu skilmálana.
  3. Settu upp tveggja þátta auðkenningu.

Ertu þegar með aðgang að Skýjadrifi á sama netfangi? Þá skráirðu þig inn og þiggur boðið með einum smelli.

Sé hlekkurinn útrunninn skaltu biðja um nýtt boð. Þá færðu nýjan hlekk og sá gamli hættir að virka.

Hlutverkið sem þér var gefið ræður því hvað þú getur gert. Hlutverkin eru útskýrð hér.

Ef þú ert á fleiri en einum reikningi smellirðu á merki Skýjadrifs efst í hliðarstikunni og velur reikning.

Skrár og möppur

Að hlaða upp skrám

Opnaðu möppuna sem skrárnar eiga að fara í. Smelltu á Hlaða upp skrá eða Hlaða upp möppu, eða dragðu skrár og möppur inn í gluggann. Undirmöppur fylgja með og halda sömu skipan.

Þú getur sent allt að 2.000 skrár í einu. Á meðan má skoða aðra hluta Skýjadrifs, en lokaðu ekki flipanum fyrr en upphleðslunni er lokið. Vafrinn varar þig við ef þú reynir það.

Sé skrá með sama heiti þegar í möppunni er nýju skránni hafnað. Breyttu heitinu á annarri þeirra og reyndu aftur.

Klárist plássið stöðvast upphleðslan. Þá þarftu að eyða einhverju eða stækka áskriftina. Skrár í ruslafötunni teljast ekki með.

Sjáirðu enga hnappa til að hlaða upp ertu annaðhvort með hlutverkið Lesandi eða reikningurinn er læstur. Lestu um læsta reikninga.

Viltu að tölvan sendi möppur sjálfkrafa? Það gerir forritið á tölvunni.

Möppur, nöfn og tilfærslur

Ný mappa býr til möppu inni í þeirri sem er opin. Möppurnar sjást líka í hliðarstikunni.

Smelltu á línu til að velja hana. Með Ctrl eða ⌘ niðri bætirðu fleiri við og með Shift niðri velurðu allt bilið á milli. Ctrl+A eða ⌘A velur allt og Esc hreinsar valið. Á snertiskjá notarðu reitina fremst í línunum.

Þegar eitthvað er valið birtist stika með aðgerðum, til dæmis Endurnefna, Færa og Eyða. Sömu aðgerðir eru í ⋯ valmyndinni á hverri línu.

Ekki er hægt að færa möppu inn í sjálfa sig eða undirmöppur sínar.

Skrárnar má sýna í lista eða reitum og raða þeim eftir heiti, stærð eða dagsetningu.

Að opna og sækja skrár

Smelltu á heiti skrár. Myndir og myndbönd opnast í skoðara þar sem þú flettir á milli og getur spilað skyggnusýningu. Aðrar skrár sækjast beint á tölvuna.

Þú getur líka valið Sækja í ⋯ valmyndinni eða í stikunni sem birtist þegar skrá er valin.

Hér sækirðu eina skrá í einu. Eigandi reikningsins getur sótt allt í einu lagi. Svona er það gert.

Leit og flýtileiðir

Á tölvu og spjaldtölvu er leitarreitur efst á síðunni. Hann finnur skrár og möppur eftir heiti, hvar sem þær eru. Sláðu inn minnst tvo stafi. Broddstafir skipta ekki máli, svo „arsskyrsla“ finnur „Ársskýrsla“.

Ýttu á / til að fara beint í leitarreitinn. Ctrl+K eða ⌘K opnar flýtivalmynd til að fara á milli hluta Skýjadrifs.

Nýlegt í hliðarstikunni sýnir skrárnar sem bættust við eða breyttust síðast.

Merki og uppáhald

Merki flokka skrár þvert á möppur. Veldu skrár, smelltu á Merkja og veldu merki eða búðu til nýtt. Allir á reikningnum sjá sömu merkin og hástafir skipta ekki máli.

Undir Merki í hliðarstikunni sérðu öll merkin og skrárnar sem bera þau. Merki fara á skrár, ekki möppur.

Hjartað setur skrá í uppáhald. Það er bara fyrir þig og aðrir á reikningnum sjá það ekki. Undir Uppáhald eru allar skrárnar sem þú hefur sett hjarta á.

Lesendur geta sett hjarta á skrár en ekki merkt þær.

Ruslafatan

Það sem þú eyðir fer í ruslafötuna og bíður þar í 30 daga. Eftir það eyðist það sjálfkrafa.

Til að fá eitthvað til baka opnarðu ruslafötuna, velur það og smellir á Endurheimta.

Eyða endanlega og Tæma ruslafötu eyða strax og fyrir fullt og allt. Þú staðfestir með kóða úr auðkenningarforritinu.

Skrár í ruslafötunni teljast ekki með í plássinu sem þú notar. Sé reikningurinn í vanskilum stendur talningin í stað, svo dagarnir tapast ekki.

Að deila

Að deila skrá eða möppu

Opnaðu ⋯ valmyndina á skránni eða möppunni og veldu Deila. Þar ákveðurðu:

  • hvort viðtakandinn þurfi lykilorð
  • hvenær hlekkurinn rennur út, eða að hann renni ekki út
  • hve oft má sækja um hlekkinn

Smelltu á Búa til hlekk. Hlekkurinn birtist aðeins einu sinni, svo afritaðu hann strax og sendu hann áfram.

Viðtakandinn þarf ekki aðgang að Skýjadrifi. Hann fær skrána upprunalega og óbreytta. Sé möppu deilt getur hann skoðað hana og undirmöppurnar, og hámarksfjöldi niðurhala gildir þá um hlekkinn í heild.

Lesendur geta ekki deilt, og nýir hlekkir verða ekki til á meðan reikningurinn er læstur.

Að fylgjast með hlekkjum og loka þeim

Undir Deilingar í hliðarstikunni sérðu alla hlekki á reikningnum og stöðu þeirra, til dæmis hvort hlekkur sé útrunninn eða fullnýttur.

Hlekk lokarðu strax með Loka hlekk. Það er alltaf hægt, líka þegar reikningurinn er læstur.

Eigendur og stjórnendur sjá Aðgangsskrá hvers hlekks: hvenær var sótt og hvenær tilraun mistókst. Sé lykilorð slegið of oft rangt inn læsist hlekkurinn um tíma.

Hlekkur á möppu hættir að virka ef möppunni er eytt, en virkar aftur ef hún er endurheimt úr ruslafötunni. Á meðan reikningurinn er læstur er ekki hægt að sækja neitt um hlekki.

Notendur og aðgangur

Að bjóða öðrum á reikninginn

  1. Opnaðu Stillingar og veldu Notendur.
  2. Sláðu inn netfang, veldu hlutverk og smelltu á Bjóða notanda.

Boðið fer í tölvupósti og hlekkurinn birtist líka á skjánum. Hver sem fær hlekkinn getur virkjað aðganginn, svo sendu hann aðeins þeim sem á að fá hann. Hann gildir í 7 daga.

Ósvöruð boð eru talin upp fyrir neðan og Afturkalla dregur boð til baka.

Aðeins eigendur og stjórnendur geta boðið fólki. Fjöldinn fer eftir stærð áskriftar og verðskráin sýnir hann. Rúmi áskriftin aðeins einn notanda er ekki hægt að bjóða fleirum.

Hlutverk

  • Eigandi ræður öllu. Aðeins eigandinn velur áskrift, tengir tölvur og sækir öll gögnin í einu. Hver reikningur hefur einn eiganda.
  • Stjórnandi getur allt sem notandi getur, býður fólki og sér aðgerðaskrána og aðgangsskrár hlekkja.
  • Notandi hleður upp, skipuleggur, merkir, deilir og eyðir.
  • Lesandi skoðar og sækir skrár og getur sett hjarta á þær, en breytir engu.

Þú velur hlutverkið þegar þú býður fólki. Svona býðurðu fólki.

Aðgerðaskrá

Eigendur og stjórnendur opna Stillingar og velja Aðgerðaskrá.

Þar sést hvað hefur gerst á reikningnum, til dæmis innskráningar, niðurhal og nýir hlekkir. Færslum er hvorki breytt né eytt.

Efst sést sérstaklega ef starfsfólk Datatech hefur farið inn á reikninginn.

Forritið á tölvunni

Forritið sem afritar tölvuna

Skýjadrif Afritun er forrit fyrir Windows sem sendir sjálfkrafa möppurnar sem þú velur upp í Skýjadrif. Undirmöppur fylgja með og aðeins nýjar og breyttar skrár eru sendar.

Það keyrir mínútu eftir að það ræsist og svo á fimmtán mínútna fresti. Afrita núna keyrir það strax.

Þetta er afrit, ekki spegill. Skrá sem þú eyðir á tölvunni er aldrei fjarlægð úr Skýjadrifi. Viljirðu losna við hana eyðirðu henni hér á vefnum.

Þegar þú lokar glugganum heldur forritið áfram í bakgrunni. Táknið við klukkuna sýnir stöðuna og þar lokarðu forritinu alveg með Loka forritinu.

Fari eitthvað úrskeiðis sýnir atburðaskráin neðst í glugganum hvað gerðist. Afritaðu hana og sendu okkur á hjalp@datatech.is.

Hafðu samband ef þig vantar forritið.

Að tengja tölvu

Aðeins eigandi reikningsins getur tengt tölvu.

  1. Í forritinu á tölvunni smellirðu á Fá tengikóða. Kóðinn gildir í 10 mínútur.
  2. Hér í Skýjadrifi opnarðu Stillingar og velur Tæki.
  3. Sláðu kóðann inn í reitinn Kóðinn sem tækið sýnir og smelltu á Halda áfram.
  4. Athugaðu hvort nafn tölvunnar og stýrikerfið passi. Þekkirðu ekki tölvuna skaltu hætta hér.
  5. Smelltu á Staðfesta tækið, sláðu inn kóða úr auðkenningarforritinu og smelltu svo aftur á Staðfesta tækið.
  6. Veldu möppur í forritinu með Bæta við möppu.

Tengd tölva sér yfirlit yfir skrárnar og bætir nýjum við. Hún kemst ekki í lykilorð, auðkenningu, greiðslur, deilihlekki, notendur eða ruslafötuna. Hún má ekki sækja gögn nema þú leyfir það sérstaklega.

Til að loka á tölvu smellirðu á Loka á tækið við hana á sömu síðu. Það þarf hvorki kóða né staðfestingu, svo að þú getir brugðist strax við ef tölva týnist.

Að sækja öll gögnin með forritinu

Í glugga forritsins er hlutinn Sækja öll gögnin. Þar sækirðu allt sem er í Skýjadrifi í möppu sem þú velur á tölvunni.

Hann er aðeins í nýjustu útgáfu forritsins, sem er til fyrir Windows. Forritið uppfærir sig ekki sjálft. Sjáirðu ekki hlutann skaltu hafa samband og fá nýju útgáfuna: hjalp@datatech.is eða 571-9300.

  1. Eigandinn opnar Stillingar og velur Tæki.
  2. Hann smellir á Leyfa það við tölvuna. Leyfið tekur gildi strax.
  3. Í forritinu smellirðu á Velja möppu og sækja og velur möppu.

Stöðvist niðurhalið smellirðu á Halda áfram. Það sem er þegar komið í möppuna er ekki sótt aftur.

Sé mappan ekki tóm spyr forritið fyrst. Skrám sem fyrir eru er aldrei skipt út. Sé skrá með sama heiti en af annarri stærð kemur útgáfan úr Skýjadrifi við hliðina á henni, til dæmis „skýrsla (úr Skýjadrifi).docx“.

Þegar niðurhalinu er lokið sækir Sækja nýjar skrár það sem hefur bæst við síðan.

Forritið neitar að sækja í möppu sem það er að afrita.

Að því loknu má taka leyfið af aftur með Taka það af.

Að sækja öll gögnin

Áður en þú byrjar

Eigandi reikningsins getur sótt allt sem er í Skýjadrifi í einu lagi, með möppuskipaninni. Opnaðu Stillingar og veldu Sækja öll gögnin þín.

Áður en niðurhalið hefst slærðu inn kóða úr auðkenningarforritinu. Á meðan reikningurinn er læstur vegna ógreiddrar kröfu er þetta ekki hægt.

Vafrinn ræður því hvernig gögnin berast:

Sjáirðu ekki Sækja öll gögnin þín í stillingunum ertu ekki eigandi reikningsins. Þú getur samt sótt eina skrá í einu.

Í Chrome eða Edge

  • Þú velur möppu sem gögnin fara í. Hún má vera á ytri diski.
  • Skrárnar eru skrifaðar með sömu möppuskipan og í Skýjadrifi.
  • Hafðu flipann opinn þar til niðurhalinu lýkur.
  • Rofni niðurhalið byrjarðu aftur og velur sömu möppu. Skrár sem þegar eru komnar eru ekki sóttar aftur.

Í Safari eða Firefox

  • Vafrinn setur gögnin saman í zip-skrár í eigin geymslu á tölvunni og sendir þær svo í niðurhalsmöppuna (Downloads).
  • Vafrinn gæti spurt hvort afrit.datatech.is megi sækja skrár. Veldu Leyfa, annars berast zip-skrárnar ekki.
  • Hver zip-skrá rúmar allt að 20 GB. Meiri gögn koma í nokkrum zip-skrám og hver þeirra geymir heilar möppur.
  • Á Mac opnast hver zip-skrá í sína eigin möppu.
  • Á meðan þarf tölvan laust pláss fyrir gögnin sjálf og allt að tvær zip-skrár til viðbótar.
  • Eftir hverja zip-skrá spyr síðan hvort hún sé komin í niðurhalsmöppuna. Svaraðu Já, hún er komin þegar hún er þar, eða veldu Vista aftur ef hún kom ekki.
  • Rofni niðurhalið opnarðu síðuna aftur og smellir á Halda áfram.
  • Taki niðurhalið meira en 24 klukkustundir biður síðan um nýjan kóða og heldur svo áfram.
  • Firefox gæti spurt hvort síðan megi geyma gögn. Veldu Leyfa, annars verða zip-skrárnar minni og mun fleiri.
  • Hverri zip-skrá er eytt úr vafranum um leið og þú staðfestir að hún sé komin. Viljirðu hætta við smellirðu á Eyða zip-skrám úr vafranum og þá er þeim öllum eytt strax. Þær sem eru komnar í niðurhalsmöppuna haldast.

Ef gögnin komast ekki fyrir á tölvunni

Séu gögnin meiri en pláss er fyrir á tölvunni þarftu ytri disk. Í Chrome eða Edge velurðu þá möppu á disknum.

Í Safari eða Firefox velurðu ytri diskinn sem niðurhalsmöppu í stillingum vafrans. Á meðan þarf samt pláss á tölvunni fyrir tvær zip-skrár.

Á Windows-tölvu getur forritið Skýjadrif Afritun sótt gögnin beint á ytri disk. Svona er það gert.

Þú getur líka haft samband við Datatech og fengið gögnin afhent á diski: hjalp@datatech.is eða 571-9300.

Öryggi

Innskráning og tveggja þátta auðkenning

Allir notendur Skýjadrifs þurfa auðkenningarforrit, til dæmis Google Authenticator, Microsoft Authenticator eða 1Password. Ekki er hægt að slökkva á auðkenningunni.

Við innskráningu slærðu fyrst inn netfang og lykilorð og svo sex stafa kóða úr forritinu. Forritið býr til nýjan kóða á hálfrar mínútu fresti.

Eftir of margar rangar tilraunir þarftu að bíða smástund áður en þú reynir aftur.

Áður en sumar stærri aðgerðir eru gerðar er líka beðið um kóða úr forritinu. Sjáðu hvaða aðgerðir það eru.

Varakóðar og týndur sími

Þegar þú setur upp auðkenninguna færðu 10 varakóða. Hver þeirra virkar einu sinni og þeir birtast aðeins í þetta eina skipti. Prentaðu þá eða geymdu í lykilorðageymslu.

Nýja kóða færðu á síðunni Varakóðar, sem er í valmynd reikningsins efst til hægri. Þá hætta gömlu kóðarnir að virka.

Ef síminn týnist:

  1. Skráðu þig inn með netfangi og lykilorði.
  2. Þegar beðið er um kóðann smellirðu á Nota varakóða.
  3. Sláðu inn netfang, lykilorð og einn varakóða. Gamla auðkenningin er þá fjarlægð.
  4. Skráðu þig inn aftur og settu upp auðkenningarforrit í nýja símanum.

Við sendum þér tölvupóst þegar auðkenningin er endurstillt. Áttu hvorki síma né varakóða skaltu hafa samband við okkur.

Kóði fyrir stærri aðgerðir

Sumar aðgerðir þarf að staðfesta með nýjum kóða úr auðkenningarforritinu, jafnvel þótt þú hafir skráð þig inn fyrir stuttu:

  • Eyða endanlega og Tæma ruslafötu
  • að sækja öll gögnin í einu
  • að tengja tölvu

Kóðinn gildir aðeins fyrir þessa einu aðgerð. Þannig dugir ekki að komast í tölvu sem er skráð inn til að eyða gögnum endanlega eða taka þau öll.

Lykilorð og netfang

Lykilorðið þarf að vera minnst 12 stafir. Þú breytir því á síðunni Prófíll með Breyta lykilorði.

Gleymirðu lykilorðinu skaltu hafa samband við okkur. Við gefum þér tímabundið lykilorð og þú skráir þig inn með því og kóðanum úr auðkenningarforritinu. Breyttu því svo strax.

Netfanginu sem þú skráir þig inn með breytum við fyrir þig. Hafðu samband: hjalp@datatech.is.

Áskrift og greiðslur

Stærðir og verð

Verðið fer eftir stærðinni sem þú velur, ekki eftir því hve mikið þú geymir.

StærðÁ mánuðiNotendur
250 GB990 kr.1 notandi
500 GB1.980 kr.1 notandi
1 TB2.590 kr.Ótakmarkaður fjöldi
2 TB4.990 kr.Ótakmarkaður fjöldi
5 TB9.990 kr.Ótakmarkaður fjöldi

Verðin eru með virðisaukaskatti.

Þarftu meira en 5 TB? Sendu okkur línu og við gerum þér tilboð: hjalp@datatech.is

Ókeypis prufan

Við nýskráningu fylgir ókeypis prufa í 30 daga með 10 GB plássi. Ekkert er greitt á meðan.

Hjá viðskiptavinum í gagnabjörgun hefst prufan þegar Datatech sendir póstinn um gögnin, og plássið miðast við það sem var bjargað.

Hvenær prufunni lýkur sést í stillingum. Þar getur eigandinn líka valið aðra stærð og hafið áskrift hvenær sem er. Svona hefst áskrift.

Sé engin áskrift hafin þegar prufunni lýkur geymum við gögnin í 61 dag til viðbótar og minnum þig nokkrum sinnum á. Eftir það er þeim eytt.

Þetta á aðeins við um prufu sem verður ekki að áskrift. Gögnum er aldrei eytt vegna ógreiddrar kröfu.

Að hefja áskrift og greiða

Aðeins eigandi reikningsins getur hafið áskrift. Opnaðu Stillingar, veldu Áskrift og smelltu á Hefja áskrift.

Kennitala þarf að vera skráð á reikninginn. Vanti hana biðjum við um hana í leiðinni.

Plássið stækkar strax og krafa berst í heimabankann, svo mánaðarlega eftir það.

Viðskiptavinir í gagnabjörgun fá 20% afslátt fyrstu 12 mánuðina. Á meðan prufan stendur sýna stillingarnar verðið með afslættinum.

Viltu breyta stærð eftir að áskriftin er hafin? Hafðu samband við okkur: hjalp@datatech.is.

Ógreidd krafa og læstur reikningur

Sé krafa ekki greidd á eindaga birtist viðvörun í hliðarstikunni og við sendum þér tölvupóst. Allt virkar áfram á meðan.

Sé krafan enn ógreidd 14 dögum eftir eindaga læsist reikningurinn í báðar áttir:

  • ekki er hægt að hlaða upp
  • ekki er hægt að sækja skrár, hvorki stakar né allar í einu
  • ekki er hægt að sækja neitt um deilihlekki
  • forritið á tölvunni hvorki sendir né sækir

Þú sérð áfram allar skrár og möppur og smámyndir af myndum.

Gögnum er aldrei eytt vegna ógreiddrar kröfu.

Til að opna reikninginn greiðirðu kröfuna í heimabankanum. Hann opnast sjálfkrafa þegar greiðslan hefur borist. Hnappurinn Athuga greiðslu í hliðarstikunni kannar strax hvort hún sé komin.

Spurningar um kröfuna? Hafðu samband: hjalp@datatech.is eða 571-9300.

Reikningurinn

Prófíll, tungumál og útlit

Hringurinn efst til hægri opnar valmynd reikningsins. Í henni geturðu skráð þig út og opnað síðuna Prófíll, þar sem þú breytir nafni, símanúmeri og lykilorði.

Með fánanum efst á síðunni velurðu tungumál: íslensku, ensku, spænsku eða pólsku. Tunglið og sólin skipta á milli dökks og ljóss útlits.

Skilmálar

Þú samþykkir skilmálana þegar þú stofnar aðgang eða þiggur boð. Á síðunni Prófíll sérðu hvenær það var, og þar opnar Lesa skilmála útgáfuna sem þú samþykktir.

Breytist skilmálarnir sendum við eiganda reikningsins tölvupóst. Á sömu síðu sést líka ef þú samþykktir eldri útgáfu.

Gildandi skilmálar eru á datatech.is/skyjadrif/skilmalar.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur tölvupóst eða hringdu.