Datatech

Hjálp

Svör við því sem fólk spyr oftast um Skýjadrif.

Algengar spurningar

Fyrstu skrefin

Gögnin sem Datatech bjargaði

Þegar Datatech hefur bjargað gögnunum setjum við þau í Skýjadrif og sendum þér tölvupóst með hlekk. Hlekkurinn gildir í 30 daga. Fáirðu fleiri en einn póst virkar aðeins hlekkurinn í þeim nýjasta.

  1. Opnaðu hlekkinn í póstinum.
  2. Sé símanúmerið þitt skráð hjá okkur smellirðu á Senda kóða og slærð inn kóðann sem berst með SMS.
  3. Veldu lykilorð sem er minnst 12 stafir og samþykktu skilmálana.
  4. Settu upp tveggja þátta auðkenningu og geymdu varakóðana vel.

Gögnin eru í möppu sem heitir „Endurheimt gögn“ og svo málsnúmerið. Hún er efst í möppuskipaninni.

Starfsfólk Datatech sem setti gögnin inn missir aðgang sinn að þeim um leið og þú samþykkir boðið.

Prufutíminn hefst daginn sem við sendum þér póstinn. Viðskiptavinir í gagnabjörgun fá líka 20% afslátt fyrstu 12 mánuðina eftir að áskrift hefst. Lestu meira um prufuna.

Viltu hafa öll gögnin á eigin tölvu eða diski? Svona sækirðu þau.

Boð frá öðrum

Eigandi eða stjórnandi aðgangs getur boðið þér inn á hann. Boðið berst í tölvupósti, eða þú færð hlekkinn sendan á annan hátt. Hann gildir í 7 daga.

  1. Opnaðu hlekkinn.
  2. Biddu um öryggiskóða. Hann berst í tölvupósti á netfangið sem boðið er stílað á og þú slærð hann inn á síðunni.
  3. Sláðu inn nafnið þitt, veldu lykilorð sem er minnst 12 stafir og samþykktu skilmálana.
  4. Settu upp tveggja þátta auðkenningu.

Hafi Datatech stofnað aðganginn fyrir þig er hann þegar á nafninu þínu. Þá velurðu aðeins lykilorð og samþykkir skilmálana.

Ertu þegar með aðgang að Skýjadrifi á sama netfangi? Þá skráirðu þig inn og þiggur boðið með einum smelli.

Sé hlekkurinn útrunninn skaltu biðja um nýtt boð. Þá færðu nýjan hlekk og sá gamli hættir að virka.

Hlutverkið sem þér var gefið ræður því hvað þú getur gert. Hlutverkin eru útskýrð hér.

Ef þú ert notandi á fleiri en einum aðgangi smellirðu á merki Skýjadrifs efst í hliðarstikunni og velur aðgang.

Skýjadrif sem app

Skýjadrif má setja upp sem app á tölvu, síma eða spjaldtölvu. Það opnast þá í eigin glugga með eigin tákni, án flipa og veffangastiku. Þetta er sama Skýjadrif og í vafranum: gögnin eru áfram í skýinu og ekkert þeirra er geymt í tækinu.

Í Chrome eða Edge, á tölvu eða Android-síma, opnar hringurinn efst til hægri valmynd aðgangsins. Veldu Setja upp vefappið og vafrinn spyr hvort setja eigi appið upp.

Á iPhone eða iPad opnarðu afrit.datatech.is í Safari og ferð svona að:

  1. Ýttu á Share-hnappinn. Hann er neðst á skjánum, eða undir ⋯ ef hann sést ekki.
  2. Veldu „Add to Home Screen“. Sé hann ekki á listanum flettirðu neðar. Sjáirðu „Open as Web App“ skaltu hafa kveikt á því.
  3. Ýttu á „Add“.

Appið á iPhone og iPad deilir ekki innskráningu með Safari, svo þú skráir þig inn einu sinni í því.

Í Safari á Mac velurðu File og svo Add to Dock í valmyndastikunni efst.

Í Firefox er enginn hnappur til að setja appið upp. Notaðu Chrome, Edge eða Safari til þess.

Appið er fjarlægt eins og önnur forrit í tækinu. Gögnin þín haldast í Skýjadrifi.

Appið er ekki það sama og forritið á tölvunni, sem afritar möppur af Windows-tölvu sjálfkrafa.

Skrár og möppur

Að hlaða upp skrám

Opnaðu möppuna sem skrárnar eiga að fara í. Smelltu á Hlaða upp skrám eða Hlaða upp möppu, eða dragðu skrár og möppur inn í gluggann. Undirmöppur fylgja með og halda sömu skipan.

Enginn hámarksfjöldi er á skrám í einu, svo heil mappa af diski fer í einni sendingu. Stór mappa getur tekið nokkrar klukkustundir. Á meðan má skoða aðra hluta Skýjadrifs, en lokaðu ekki flipanum fyrr en upphleðslunni er lokið. Vafrinn varar þig við ef þú reynir það.

Sé skrá með sama heiti þegar í möppunni er hún ekki send aftur og merkt „Var þegar til“. Rofni upphleðsla geturðu því sent sömu möppu aftur: aðeins það sem vantar fer upp.

Framvindan sést í dálki hægra megin: hver skrá og hve mikið af henni er komið. Stöðva upphleðslu stöðvar allt sem er eftir og krossinn við skrá stöðvar hana eina. Fela felur dálkinn, og þá sýnir hnappur neðst í horninu hve margar skrár eru komnar. Smelltu á hann til að opna dálkinn aftur.

Skrá sem ekki tekst að senda, til dæmis vegna þess að annað forrit hefur hana opna, er merkt með ástæðunni í dálkinum. Hinar halda áfram. Til að senda þær sem mistókust aftur smellirðu á Reyna aftur við þær sem mistókust.

Klárist plássið stöðvast upphleðslan. Þá þarftu að eyða einhverju og tæma ruslafötuna, eða stækka áskriftina. Skrár í ruslafötunni teljast með þar til þær eyðast.

Sjáirðu enga hnappa til að hlaða upp ertu annaðhvort með hlutverkið Lesandi eða aðgangurinn er læstur. Lestu um læsta aðganga.

Viltu að tölvan sendi möppur sjálfkrafa? Það gerir forritið á tölvunni.

Möppur, nöfn og tilfærslur

Ný mappa býr til möppu inni í þeirri sem er opin. Möppurnar sjást líka í hliðarstikunni.

Smelltu á línu til að velja hana. Með Ctrl eða ⌘ niðri bætirðu fleiri við og með Shift niðri velurðu allt bilið á milli. Ctrl+A eða ⌘A velur allt og Esc hreinsar valið. Á snertiskjá notarðu reitina fremst í línunum.

Þegar eitthvað er valið birtist stika með aðgerðum, til dæmis Endurnefna, Færa og Færa í ruslafötu. Sömu aðgerðir eru í ⋯ valmyndinni á hverri línu.

Ekki er hægt að færa möppu inn í sjálfa sig eða undirmöppur sínar.

Skrárnar má sýna í lista eða reitum og raða þeim eftir heiti, stærð eða dagsetningu.

Mappa sem er að mestu myndir og myndskeið opnast eins og albúm: nafn möppunnar, tímabilið sem myndirnar ná yfir og fjöldi skráa, og myndirnar í þéttri grind. Sleðinn efst til hægri stækkar þær og minnkar og myndskeið sýna hve löng þau eru. Þar má líka raða eftir Tekin, það er eftir því hvenær myndirnar voru teknar. Viljirðu frekar lista smellirðu á Listi. Skýjadrif man það val sér fyrir myndamöppur.

Að opna og sækja skrár

Smelltu á heiti skrár. Myndir og myndbönd opnast í skoðara þar sem þú flettir á milli og getur spilað skyggnusýningu. Aðrar skrár sækjast beint á tölvuna.

Þú getur líka valið Sækja í ⋯ valmyndinni eða í stikunni sem birtist þegar skrá er valin.

Eigandi aðgangsins getur líka sótt heila möppu eða margar skrár í einu. Svona er það gert.

Að sækja möppu eða margar skrár í einu

Eigandi aðgangsins getur sótt heila möppu, eða allt sem hann hakar við, í einu niðurhali:

  • Heil mappa: opnaðu ⋯ valmyndina við möppuna og veldu Sækja möppu.
  • Margar skrár eða möppur: hakaðu við þær og veldu Sækja í stikunni sem birtist.
  • Myndir: hakaðu við myndirnar í Myndum, Uppáhaldi eða albúmi og veldu Sækja.

Þá opnast síða sem sýnir hve margar skrárnar eru og hve mikið pláss þær taka. Smelltu á Hefja niðurhal og sláðu inn kóða úr auðkenningarforritinu.

Vafrinn ræður því hvernig gögnin berast, eins og þegar allt er sótt:

  • Í Chrome eða Edge velurðu möppu á tölvunni. Skýjadrif býr til nýja möppu inni í henni, nefnda eftir því sem þú sóttir, og skrifar ekki yfir neitt sem var þar fyrir.
  • Í Safari eða Firefox koma gögnin í zip-skrá í niðurhalsmöppunni. Stórt niðurhal kemur í fleiri en einni zip-skrá.

Mappa kemur með sömu möppuskipan og í Skýjadrifi. Myndir sem eru valdar í Myndum koma hins vegar allar saman, án möppuskipanar, því þær geta verið úr mörgum möppum.

Stöðvist niðurhalið smellirðu á Halda áfram. Í Chrome og Edge velurðu þá sömu möppu og áður, á meðan síðan er enn opin. Í einu niðurhali má haka við allt að 5.000 skrár og 500 möppur. Heil mappa telst ein, sama hve mikið er í henni. Sé hakað við fleiri bendir síðan þér á að sækja öll gögnin í staðinn.

Á meðan aðgangurinn er læstur vegna ógreiddrar kröfu er þetta ekki hægt. Aðrir notendur aðgangsins sækja eina skrá í einu.

Leit og flýtileiðir

Á tölvu og spjaldtölvu er leitarreitur efst á síðunni. Hann finnur skrár og möppur eftir heiti, hvar sem þær eru. Sláðu inn minnst tvo stafi. Broddstafir skipta ekki máli, svo „arsskyrsla“ finnur „Ársskýrsla“.

Ýttu á / til að fara beint í leitarreitinn. Ctrl+K eða ⌘K opnar flýtivalmynd til að fara á milli hluta Skýjadrifs.

Nýlegt í hliðarstikunni sýnir skrárnar sem bættust við eða breyttust síðast.

Merki og uppáhald

Merki flokka skrár þvert á möppur. Veldu skrár, smelltu á Merkja og veldu merki eða búðu til nýtt. Allir notendur á aðganginum sjá sömu merkin og hástafir skipta ekki máli.

Undir Merki í hliðarstikunni sérðu öll merkin og skrárnar sem bera þau. Merki fara á skrár, ekki möppur.

Hjartað setur skrá í uppáhald. Það er bara fyrir þig og aðrir notendur sjá það ekki. Undir Uppáhald eru allar skrárnar sem þú hefur sett hjarta á.

Lesendur geta sett hjarta á skrár en ekki merkt þær.

Ruslafatan

Það sem þú eyðir fer í ruslafötuna og bíður þar í 30 daga. Eftir það eyðist það sjálfkrafa.

Til að fá eitthvað til baka opnarðu ruslafötuna, velur það og smellir á Endurheimta.

Eyða endanlega og Tæma ruslafötu eyða strax og fyrir fullt og allt. Þú staðfestir með kóða úr auðkenningarforritinu.

Skrár í ruslafötunni teljast með í plássinu sem þú notar þar til þær eyðast. Að tæma ruslafötuna losar plássið strax. Sé aðgangurinn í vanskilum stendur talningin í stað, svo dagarnir tapast ekki.

Að deila

Að deila skrá eða möppu

Opnaðu ⋯ valmyndina á skránni eða möppunni og veldu Deila. Þar ákveðurðu:

  • hvort viðtakandinn þurfi lykilorð
  • hvenær hlekkurinn rennur út, eða að hann renni ekki út
  • hve oft má sækja með hlekknum

Smelltu á Búa til hlekk. Hlekkurinn birtist aðeins einu sinni, svo afritaðu hann strax og sendu hann áfram.

Viðtakandinn þarf ekki aðgang að Skýjadrifi. Hann fær skrána upprunalega og óbreytta. Sé möppu deilt getur hann skoðað hana og undirmöppurnar, og hámarksfjöldi niðurhala gildir þá um hlekkinn í heild.

Lesendur geta ekki deilt, og nýir hlekkir verða ekki til á meðan aðgangurinn er læstur.

Að fylgjast með hlekkjum og loka þeim

Undir Deilingar í hliðarstikunni sérðu alla hlekki á aðganginum og stöðu þeirra, til dæmis hvort hlekkur sé útrunninn eða fullnýttur.

Hlekk lokarðu strax með Loka hlekk. Það er alltaf hægt, líka þegar aðgangurinn er læstur.

Eigendur og stjórnendur sjá Aðgangsskrá hvers hlekks: hvenær var sótt og hvenær tilraun mistókst. Sé lykilorð slegið of oft rangt inn læsist hlekkurinn um tíma.

Hlekkur á möppu hættir að virka ef möppunni er eytt, en virkar aftur ef hún er endurheimt úr ruslafötunni. Á meðan aðgangurinn er læstur er ekki hægt að sækja neitt með hlekkjum.

Notendur og hlutverk

Að bjóða öðrum aðgang

  1. Opnaðu Stillingar og veldu Notendur.
  2. Sláðu inn netfang, veldu hlutverk og smelltu á Bjóða notanda.

Boðið fer í tölvupósti og hlekkurinn birtist líka á skjánum. Hver sem fær hlekkinn getur virkjað aðganginn, svo sendu hann aðeins þeim sem á að fá hann. Hann gildir í 7 daga.

Ósvöruð boð eru talin upp fyrir neðan og Afturkalla dregur boð til baka.

Aðeins eigendur og stjórnendur geta boðið fólki. Fjöldinn fer eftir stærð áskriftar og verðskráin sýnir hann. Rúmi áskriftin aðeins einn notanda er ekki hægt að bjóða fleirum.

Hlutverk

  • Eigandi ræður öllu. Aðeins eigandinn velur áskrift, tengir tölvur og sækir öll gögnin í einu. Hver aðgangur hefur einn eiganda.
  • Stjórnandi getur allt sem notandi getur, býður fólki og sér aðgerðaskrána og aðgangsskrár hlekkja.
  • Notandi hleður upp, skipuleggur, merkir, deilir og eyðir.
  • Lesandi skoðar og sækir skrár og getur sett hjarta á þær, en breytir engu.

Þú velur hlutverkið þegar þú býður fólki. Svona býðurðu fólki.

Aðgerðaskrá

Eigendur og stjórnendur opna Stillingar og velja Aðgerðaskrá.

Þar sést hvað hefur gerst á aðganginum, til dæmis innskráningar, niðurhal og nýir hlekkir. Færslum er hvorki breytt né eytt.

Efst sést sérstaklega ef starfsfólk Datatech hefur farið inn á aðganginn.

Forritið á tölvunni

Forritið sem afritar tölvuna

Skýjadrif Afritun er forrit fyrir Windows. Það sendir möppurnar sem þú velur sjálfkrafa í Skýjadrif og heldur því áfram á meðan kveikt er á tölvunni.

  1. Settu forritið upp. Það þarf ekki stjórnandaréttindi.
  2. Smelltu á Skrá inn og tengdu tölvuna. Því er lýst í Að tengja tölvu.
  3. Veldu hvað á að afrita. Skjáborð, Skjöl og Myndir eru valin fyrir þig og Bæta við möppu bætir öðrum við. Smelltu svo á Hefja afritun.

Forritið ræsist með Windows og bíður við klukkuna neðst á skjánum. Það afritar 1 mínútu eftir ræsingu og svo á 15 mínútna fresti.

Þegar þú lokar glugganum heldur forritið áfram. Táknið við klukkuna sýnir stöðuna og í valmynd þess eru Afrita núna, Sækja úr Skýjadrifi, Stillingar og Loka forritinu.

Í Stillingar er atburðaskráin. Fari eitthvað úrskeiðis smellirðu á Afrita atburðaskrá og sendir okkur hana á hjalp@datatech.is.

Hvað er sent og hve lengi eldri útgáfur eru geymdar stendur í Svona virkar afritunin.

Sendu okkur línu á hjalp@datatech.is og við sendum þér forritið.

Að tengja tölvu

Aðeins eigandi aðgangsins getur tengt tölvu.

  1. Í forritinu á tölvunni smellirðu á Skrá inn. Skýjadrif opnast í vafranum.
  2. Skráðu þig inn ef beðið er um það. Eigirðu fleiri en einn aðgang velurðu þann sem tölvan á að afrita í.
  3. Kóðinn er þegar kominn í reitinn Kóðinn sem tækið sýnir. Smelltu á Halda áfram.
  4. Athugaðu hvort nafn tölvunnar og stýrikerfið passi. Þekkirðu ekki tölvuna skaltu hætta hér.
  5. Smelltu á Staðfesta tækið og sláðu inn kóða úr auðkenningarforritinu. Tölvan tengist um leið og kóðinn er samþykktur.
  6. Forritið heldur sjálft áfram. Þar velurðu hvað á að afrita og smellir á Hefja afritun.

Opnist vafrinn ekki sýnir forritið kóða sem gildir í 10 mínútur. Þá opnarðu Stillingar, velur Tæki og slærð kóðann inn í reitinn Kóðinn sem tækið sýnir.

Í Skýjadrifi fær tölvan sína eigin möppu, með nafni tölvunnar og tákni tölvu. Þar eru möppurnar sem hún afritar.

Tengd tölva sér yfirlit yfir skrárnar og bætir nýjum við. Hún kemst ekki í lykilorð, auðkenningu, greiðslur, deilihlekki, notendur eða ruslafötuna. Hún má ekki sækja gögn nema þú leyfir það sérstaklega.

Til að loka á tölvu smellirðu á Loka á tækið við hana á sömu síðu. Það þarf hvorki kóða né staðfestingu, svo að þú getir brugðist strax við ef tölva týnist.

Svona virkar afritunin

Fyrsta keyrslan sendir allt sem er í möppunum sem þú valdir. Sé mikið í þeim getur hún tekið nokkra klukkutíma.

Eftir það eru aðeins nýjar og breyttar skrár sendar. Óbreytt skrá er ekki send aftur, svo að keyrslurnar búa ekki til ný afrit af því sem er óbreytt.

Skrá sem er til á fleiri en einum stað, eða hefur verið færð eða endurnefnd, er aðeins send einu sinni. Hvert eintak hennar í Skýjadrifi telst þó að fullu til plássins.

Breytist skrá geymir Skýjadrif nýju útgáfuna og heldur þeirri eldri. Eldri útgáfu sækirðu með forritinu: í Sækja úr Skýjadrifi velurðu dag og færð skrárnar eins og þær voru þá.

Eldri útgáfur eru geymdar í 90 daga og þeim svo eytt. Þó eru alltaf geymdar 10 nýjustu útgáfur hverrar skrár, hversu gamlar sem þær eru.

Það sem er geymt telst til plássins á aðganginum: skrárnar eins og þær eru núna, eldri útgáfur þeirra, skrár sem þú hefur eytt á tölvunni og það sem er í ruslafötunni.

Þetta er afrit, ekki spegill. Skrá sem þú eyðir á tölvunni er áfram í Skýjadrifi. Viljirðu losna við hana eyðirðu henni hér á vefnum. Hún fer þá í ruslafötuna og er fjarlægð eftir 30 daga.

Forritið hættir að afrita möppu ef mikið breytist í einu. Það gerist þegar að minnsta kosti 50 skrár hafa breyst eða horfið frá síðustu keyrslu og þær eru fimmtungur möppunnar eða meira. Þannig lítur gagnagíslataka út, þegar forrit dulkóðar skrárnar á tölvunni. Forritið spyr þá hvort breytingarnar séu þínar og eigandi aðgangsins fær tölvupóst.

Skrár sem eru aðeins í skýinu, til dæmis í OneDrive, eru ekki sóttar á tölvuna til að afrita þær. Forritið segir hve margar þær eru. Viltu afrita þær stillirðu OneDrive þannig að þær séu alltaf geymdar á tölvunni.

Finnist mappa ekki, til dæmis þegar flakkari er ótengdur, er ekkert í henni talið horfið. Afritun heldur áfram þegar hann er tengdur aftur.

Að sækja gögn með forritinu

Í Sækja úr Skýjadrifi sérðu allt sem er í Skýjadrifi, möppur og skrár. Þaðan sækirðu allt eða hluta þess á tölvuna. Glugginn opnast úr valmyndinni við klukkuna, af stöðuskjánum og úr Stillingar.

Fyrst þarf eigandi aðgangsins að leyfa tölvunni að sækja gögn:

  1. Opnaðu Stillingar og veldu Tæki.
  2. Smelltu á Leyfa það við tölvuna. Leyfið tekur gildi strax.

Svona sækirðu:

  1. Hakaðu við Allt í Skýjadrifi til að sækja allt, eða við möppurnar og skrárnar sem þú vilt. Mappa sem þú hakar við kemur öll með.
  2. Smelltu á Sækja valið… og veldu möppu á tölvunni.

Mappa kemur með heiti sínu. Hakirðu við „Skjöl“ færðu möppuna „Skjöl“ með öllu sem í henni er.

Með Eins og það var í lok dags velurðu dag. Þá sérðu Skýjadrif eins og það var í lok hans og sækir þær útgáfur. Þannig kemstu aftur fyrir gagnagíslatöku eða mistök.

Það nær 90 daga aftur í tímann.

Skrám sem fyrir eru í möppunni er aldrei skipt út. Sé skrá þar ekki eins og í Skýjadrifi kemur útgáfan úr Skýjadrifi við hliðina á henni, til dæmis „skýrsla (úr Skýjadrifi).docx“. Sé mappan ekki tóm spyr forritið fyrst.

Stöðvist niðurhalið smellirðu á Halda áfram. Það sem er komið er ekki sótt aftur. Að því loknu sækir Sækja nýjar skrár það sem hefur bæst við síðan. Veljirðu annan dag en síðast byrjar Sækja valið… hins vegar nýtt niðurhal frá þeim degi, og Halda áfram er þá við hliðina.

Forritið neitar að sækja í möppu sem það afritar, því annars færu skrárnar aftur upp sem nýjar.

Að því loknu má taka leyfið af aftur með Taka það af.

Að sækja öll gögnin

Áður en þú byrjar

Eigandi aðgangsins getur sótt allt sem er í Skýjadrifi í einu lagi, með möppuskipaninni. Opnaðu Stillingar og veldu Sækja öll gögnin þín.

Áður en niðurhalið hefst slærðu inn kóða úr auðkenningarforritinu. Á meðan aðgangurinn er læstur vegna ógreiddrar kröfu er þetta ekki hægt.

Vafrinn ræður því hvernig gögnin berast:

Sjáirðu ekki Sækja öll gögnin þín í stillingunum ertu ekki eigandi aðgangsins. Þú getur samt sótt eina skrá í einu.

Í Chrome eða Edge

  • Þú velur möppu sem gögnin fara í. Hún má vera á ytri diski.
  • Skrárnar eru skrifaðar með sömu möppuskipan og í Skýjadrifi.
  • Hafðu flipann opinn þar til niðurhalinu lýkur.
  • Rofni niðurhalið byrjarðu aftur og velur sömu möppu. Skrár sem þegar eru komnar eru ekki sóttar aftur.

Í Safari eða Firefox

  • Vafrinn setur gögnin saman í zip-skrár í eigin geymslu á tölvunni og sendir þær svo í niðurhalsmöppuna (Downloads).
  • Vafrinn gæti spurt hvort afrit.datatech.is megi sækja skrár. Veldu Leyfa, annars berast zip-skrárnar ekki.
  • Hver zip-skrá rúmar allt að 20 GB. Meiri gögn koma í nokkrum zip-skrám og hver þeirra geymir heilar möppur.
  • Á Mac opnast hver zip-skrá í sína eigin möppu.
  • Á meðan þarf tölvan laust pláss fyrir gögnin sjálf og allt að tvær zip-skrár til viðbótar.
  • Eftir hverja zip-skrá spyr síðan hvort hún sé komin í niðurhalsmöppuna. Svaraðu Já, hún er komin þegar hún er þar, eða veldu Vista aftur ef hún kom ekki.
  • Rofni niðurhalið opnarðu síðuna aftur og smellir á Halda áfram.
  • Taki niðurhalið meira en 24 klukkustundir biður síðan um nýjan kóða og heldur svo áfram.
  • Firefox gæti spurt hvort síðan megi geyma gögn. Veldu Leyfa, annars verða zip-skrárnar minni og mun fleiri.
  • Í huliðsglugga í Firefox fær síðan ekki að geyma gögn á tölvunni. Þá eru zip-skrárnar búnar til í vinnsluminni og hver rúmar allt að 1 GB. Skrár sem eru stærri en það sækirðu stakar af lista á síðunni. Lokist glugginn tapast zip-skráin sem verið var að búa til.
  • Hverri zip-skrá er eytt úr vafranum um leið og þú staðfestir að hún sé komin. Viljirðu hætta við smellirðu á Eyða zip-skrám úr vafranum og þá er þeim öllum eytt strax. Þær sem eru komnar í niðurhalsmöppuna haldast.

Ef gögnin komast ekki fyrir á tölvunni

Séu gögnin meiri en pláss er fyrir á tölvunni þarftu ytri disk. Í Chrome eða Edge velurðu þá möppu á disknum.

Í Safari eða Firefox velurðu ytri diskinn sem niðurhalsmöppu í stillingum vafrans. Á meðan þarf samt pláss á tölvunni fyrir tvær zip-skrár.

Á Windows-tölvu getur forritið Skýjadrif Afritun sótt gögnin beint á ytri disk. Svona er það gert.

Þú getur líka haft samband við Datatech og fengið gögnin afhent á diski: hjalp@datatech.is eða 571-9300.

Öryggi

Innskráning og tveggja þátta auðkenning

Allir notendur Skýjadrifs þurfa auðkenningarforrit, til dæmis Google Authenticator, Microsoft Authenticator eða 1Password. Ekki er hægt að slökkva á auðkenningunni.

Við innskráningu slærðu fyrst inn netfang og lykilorð og svo sex stafa kóða úr forritinu. Forritið býr til nýjan kóða á hálfrar mínútu fresti.

Eftir of margar rangar tilraunir þarftu að bíða smástund áður en þú reynir aftur.

Þegar þú slærð inn kóðann úr forritinu geturðu valið að innskráningin gildi í 7 daga. Gerðu það aðeins á eigin tæki. Annars skráum við þig út þegar vafranum er lokað eða eftir 30 mínútur án notkunar. Við spyrjum hvort þú sért enn þarna 2 mínútum áður, og upphal eða niðurhal sem er í gangi telst notkun.

Áður en sumar stærri aðgerðir eru gerðar er líka beðið um kóða úr forritinu. Sjáðu hvaða aðgerðir það eru.

Varakóðar og týndur sími

Þegar þú setur upp auðkenninguna færðu 10 varakóða. Hver þeirra virkar einu sinni og þeir birtast aðeins í þetta eina skipti. Prentaðu þá eða geymdu í lykilorðageymslu.

Nýja kóða færðu á síðunni Varakóðar, sem er í valmynd aðgangsins efst til hægri. Þá hætta gömlu kóðarnir að virka.

Ef síminn týnist:

  1. Skráðu þig inn með netfangi og lykilorði.
  2. Þegar beðið er um kóðann smellirðu á Nota varakóða.
  3. Sláðu inn netfang, lykilorð og einn varakóða, og veldu nýtt lykilorð. Gamla auðkenningin er þá fjarlægð og nýja lykilorðið tekur við.
  4. Skráðu þig inn með nýja lykilorðinu og settu upp auðkenningarforrit í nýja símanum. Þú færð þá líka nýja varakóða.

Við sendum þér tölvupóst þegar auðkenningin er endurstillt. Áttu hvorki síma né varakóða skaltu hafa samband við okkur.

Kóði fyrir stærri aðgerðir

Sumar aðgerðir þarf að staðfesta með nýjum kóða úr auðkenningarforritinu, jafnvel þótt þú hafir skráð þig inn fyrir stuttu:

  • Eyða endanlega og Tæma ruslafötu
  • að sækja öll gögnin í einu
  • að tengja tölvu

Kóðinn gildir aðeins fyrir þessa einu aðgerð. Þannig dugir ekki að komast í tölvu sem er skráð inn til að eyða gögnum endanlega eða taka þau öll.

Lykilorð og netfang

Lykilorðið þarf að vera minnst 12 stafir. Þú breytir því á síðunni Prófíll með Breyta lykilorði.

Gleymirðu lykilorðinu skaltu hafa samband við okkur. Við gefum þér tímabundið lykilorð og þú skráir þig inn með því og kóðanum úr auðkenningarforritinu. Breyttu því svo strax.

Á síðunni Prófíll geturðu bætt við varanetfangi, til dæmis einkanetfangi. Það tekur gildi þegar þú opnar hlekkinn sem við sendum þangað, og öryggistilkynningar fara eftir það á bæði netföngin.

Missirðu pósthólfið sem þú skráir þig inn með geturðu skráð þig inn með varanetfanginu í staðinn. Til þess þarf lykilorðið og kóða úr auðkenningarforritinu. Varanetfangið opnar aldrei aðganginn eitt og sér, og lykilorð er ekki endurstillt í gegnum það.

Áttu ekkert varanetfang og kemstu ekki lengur í pósthólfið? Hafðu samband: hjalp@datatech.is.

Áskrift og greiðslur

Stærðir og verð

Verðið fer eftir stærðinni sem þú velur, ekki eftir því hve mikið þú geymir.

StærðÁ mánuðiNotendur
250 GB990 kr.1 notandi
500 GB1.980 kr.1 notandi
1 TB2.590 kr.Ótakmarkaður fjöldi
2 TB4.990 kr.Ótakmarkaður fjöldi
5 TB9.990 kr.Ótakmarkaður fjöldi

Verðin eru með virðisaukaskatti.

Þarftu meira en 5 TB? Sendu okkur línu og við gerum þér tilboð: hjalp@datatech.is

Ókeypis prufan

Við nýskráningu fylgir ókeypis prufa í 30 daga með 10 GB plássi. Ekkert er greitt á meðan.

Hjá viðskiptavinum í gagnabjörgun hefst prufan þegar Datatech sendir póstinn um gögnin, og plássið miðast við það sem var bjargað.

Hvenær prufunni lýkur sést í stillingum. Þar getur eigandinn líka valið aðra stærð og hafið áskrift hvenær sem er. Svona hefst áskrift.

Sé engin áskrift hafin þegar prufunni lýkur geymum við gögnin í 61 dag til viðbótar og minnum þig nokkrum sinnum á. Eftir það er þeim eytt.

Þetta á aðeins við um prufu sem verður ekki að áskrift. Gögnum er aldrei eytt vegna ógreiddrar kröfu.

Að hefja áskrift og greiða

Aðeins eigandi aðgangsins getur hafið áskrift. Opnaðu Stillingar, veldu Áskrift og smelltu á Hefja áskrift.

Kennitala þarf að vera skráð á aðganginn. Vanti hana biðjum við um hana í leiðinni.

Krafa berst í heimabankann og svo mánaðarlega eftir það. Plássið stækkar í stærð áskriftarinnar þegar fyrsta krafan hefur verið greidd. Fram að því gildir stærð prufunnar.

Viðskiptavinir í gagnabjörgun fá 20% afslátt fyrstu 12 mánuðina. Á meðan prufan stendur sýna stillingarnar verðið með afslættinum.

Viltu breyta stærð eftir að áskriftin er hafin? Hafðu samband við okkur: hjalp@datatech.is.

Ógreidd krafa og læstur aðgangur

Sé krafa ekki greidd á gjalddaga birtist viðvörun í hliðarstikunni og við sendum þér tölvupóst. Allt virkar áfram á meðan.

Sé krafan enn ógreidd 14 dögum eftir gjalddaga læsist aðgangurinn í báðar áttir:

  • ekki er hægt að hlaða upp
  • ekki er hægt að sækja skrár, hvorki stakar né allar í einu
  • ekki er hægt að sækja neitt með deilihlekkjum
  • forritið á tölvunni hvorki sendir né sækir

Þú sérð áfram allar skrár og möppur og smámyndir af myndum.

Gögnum er aldrei eytt vegna ógreiddrar kröfu.

Til að opna aðganginn greiðirðu kröfuna í heimabankanum. Hann opnast sjálfkrafa þegar greiðslan hefur borist. Hnappurinn Athuga greiðslu í hliðarstikunni kannar strax hvort hún sé komin.

Spurningar um kröfuna? Hafðu samband: hjalp@datatech.is eða 571-9300.

Aðgangurinn þinn

Prófíll, tungumál og útlit

Hringurinn efst til hægri opnar valmynd aðgangsins. Í henni geturðu skráð þig út og opnað síðuna Prófíll, þar sem þú breytir nafni, símanúmeri og lykilorði. Þar geturðu líka hlaðið upp mynd af þér, sem birtist í hringnum í stað upphafsstafanna og hjá öðrum notendum á aðganginum.

Með fánanum efst á síðunni velurðu tungumál: íslensku, ensku, spænsku eða pólsku. Tunglið og sólin skipta á milli dökks og ljóss útlits.

Skilmálar

Þú samþykkir skilmálana þegar þú stofnar aðgang eða þiggur boð. Á síðunni Prófíll sérðu hvenær það var, og þar opnar Lesa skilmála útgáfuna sem þú samþykktir.

Breytist skilmálarnir sendum við eiganda aðgangsins tölvupóst. Á sömu síðu sést líka ef þú samþykktir eldri útgáfu.

Gildandi skilmálar eru á datatech.is/skyjadrif/skilmalar.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur tölvupóst eða hringdu.